4. flokkur karla
4. flokkur: þar fara börn sem frá og með því almanaksári er þau verða 13 ára og fram til þess almanaksárs að
þau verða 14 ára og að því meðtöldu.
Markmið í tækni- og leikfræðilegum atriðum 4. flokks.
Tækni
- Spyrnu og móttaka bolta æfðar undir pressu, í leikformi með ákveðin markmið.
- Knattrak og brellur æfðar undir pressu.
- Sköllun og skallatennis
- Hoppspyrna
- Fyrirgjafir með ýmsu móti s.s. innanverð rist, utanverð rist bein rist ofl.
Leikfræði:
- Markskot af ýmsum toga. Eftir samspil, 1:1, viðstöðulaust ofl.
- Hreyfing án bolta
- Undirstöðuatriði í liðssamvinnu í sókn; dýpt, fríhlaup, vídd, hreyfing í opin svæði
- Undirstöðuatriði í liðssamvinnu í vörn: Dýpt, gæsla, loka svæði, samþjöppun, völdun
- Veggsending, knattvíxlun, framhjáhlaup, ,,no look“ sendingar
- Gæsla maður á mann með bolta
- Gæsla maður á mann án bolta
- (Rennitækling)
- Pressa með áherslu á rétta varnarstöðu.
- Vítaspyrnur, rétt innköst, hornspyrnur í vörn og sókn, aukaspyrnur beinar og óbeinar.
- Rangstæða
- Markmenn; verja skot, fyrirgjafir, stjórna vörninni, varnarveggur, koma knetti í leik
- kasta/sparka,
Boðið skal upp á þrjár æfingar yfir vetrartímann (3x50 mín) og tvær yfir sumartíma
(2x90). Farið skal með krakkana á mót eða spilaðir æfingaleikir eftir þörfum en helstu
mót eru: Faxaflóamót, Íslandsmót og Reycup.