5. flokkur kvenna
5. flokkur: í þann flokk fara börn frá og með því almanaksári er þau verða 11 ára og fram til þess almanaksárs að
þau verða 12 ára og að því meðtöldu.
Markmið í tækni- og leikfræðilegum atriðum 5. flokks.
Tækni
- Knattsendingar; með jörðu og á lofti, innan og utanfótar, utanverð og bein rist.
- Knattrak; hraðaskipti, knetti skýlt, knattrak með gabbhreyfingum,
- Knattmóttaka; jarðarbolta og stýring, hárra bolta og stýring
- Fyrirgjafir.
- Sköllun; kyrrstaða, uppstökk, flugskalli.
- Gabbhreyfingar, eins margar og unnt er.
- Samleikur af ýmsum toga.
Leikfræði
- Markskot eftir samspil, klára fyrirgjafir.
- Leikið 1:1 með ýmsum afbrigðum.
- Skallatennis.
- Leikæfingar þar sem fáir eru í liði.
- Leikfræði liðs, undirstöðuatriði liðssamvinnu.
- Grunnæfingar fyrir markmenn + aukaæfingar fyrir markmenn.
- Fótavinna, hraðar fótahreyfingar.
Boðið skal upp á þrjár æfingar yfir vetrartímann (3x50 mín) og tvær yfir sumartíma (2x90).
Farið skal með krakkana á mót eða spilaðir æfingaleikir eftir þörfum en helstu mót í karla
flokki eru: Jólamót í Hveragerði, Faxaflóamót, Íslandsmót, N1 og Olís mót. Í kvenna flokki
eru Jólamót í Hveragerði, Faxaflóamótið, Íslandsmót og Símamótið. Allt í samstarfi og
samvinnu við ÍBV.